Safer Use of Services on the Internet skammstafað SUSI, er
verkefni um ábyrga netnotkun, verkefninu er ætlað
er að auka vitund foreldra og kennara á óæskilegu
efni á Netinu. SUSI verkefnið er styrkt af Evrópusambandinu
en unnið af Heimili og skóla- landssamtökum foreldra
í samvinnu við Euskaltel á Spáni, Scottish
Parent Teacher Council, Learning and Teaching Scotland og Vereniging
voor Openbaar Onderwijs í Hollandi.. Styrktaraðilar verkefnisins
á Íslandi eru Síminn, menntamálaráðuneyti
og samgönguráðuneyti. Megin uppstaða verkefnisins
er upplýsingasíða á Netinu www.besafeonline.org
og útgáfa upplýsingabæklings einnig fyrirlestrar
og heimsóknir í skóla þar sem foreldrafélögum
er kynnt verkefnið sem miðar að vitund meðal foreldra
um hættur og óæskilegt efni fyrir börn og
unglinga á Netinu.
Markmið er að fá foreldra eða forráðamenn
barna og unglinga til að ræða notkun Netsins við
þau og spyrja hvening þau noti netið Hvort þau
eigi netvini? og hvort þau hafi hitt þá? Einnig
hvetjum við foreldra til að spyrjast fyrir um það
hvernig skóli barna þeirra hindri aðgang að
óæskilegu efni og hvaða reglur gildi varðandi
aðgang að Netinu í skólunum?.
Notkun á SUSI síðunni?
Á SUSI www.besafeonline.org er kennd notkun á þjónustu
Netsins.
Meðal efnis er:
- Veraldarvefur
- Tölvupóstur
- Spjallrásir
- Fréttahópar
- Verslun á Netinu
- Skráarflutningur
- Gullnar reglur um notkun Netsins
Til að komast inn á tiltekin svæði á
síðunni er smellt á hnappana sem eru merktir eins
og listinn hér að ofan. Hægt er að sækja
efnið sem word-skjal, eða RTF, PDF og vista það
á tölvunni og/eða prenta út til umræðna
á heimilum eða í skóla.
|